Á mynd eru: Maríanna Eva Dúfa Sævarsdóttir, Ásdís Birna Gylfadóttir, Vena Naskrecka, Pétur Magnússon, Juan Camilo Roman Estrada, Achola Otieno, April Dobbins, Elizabeth Lay, Jelena Bjeletic með Halldóru Móu.
Frá vinstri: Maríanna Eva Dúfa Sævarsdóttir, Ásdís Birna Gylfadóttir, Vena Naskrecka, Pétur Magnússon, Juan Camilo Roman Estrada, Achola Otieno, April Dobbins, Elizabeth Lay, Jelena Bjeletic með Halldóru Móu.

Viðtal | Fólk framtíðar í Samfélaginu

Samtarfsaðilar Framtíðarfestivalsins hittu Pétur Magnússon, umsjónarmann útvarpsþáttarins Samfélagið á Rás 1, og sögðu frá sinni framtíðarsýn og með hvaða hætti þau munu leggja til Framtíðarfestivalsins. Úr samstarfi Samfélagsins og Borgarbókasafnsins varð viðtalaröð sem fór í loftið 14. janúar 2025 og verður útvörpuð á hverjum degi í Samfélaginu næstu daga. Við mælum með að leggja við hlustir, því hér má heyra fjölbreyttar raddir lýsa einstökum framtíðarmöguleikum. Hér færðu forsmekkinn af Framtíðarfestivalinu þar sem farið verður dýpra í þemun á skapandi vinnustofum, spjallhringjum og kynningum. 

Hvernig er framtíðin í okkar huga? Er hún línuleg eða hringlaga? Fyrir framan okkur eða til hliðar? Kannski er hún frekar eins blóm? Kynnst framtíðarhugsuðunum nánar í spennandi viðtölum við Pétur.  

interview on samelagid

UppfærtFimmtudagur, 23. janúar, 2025 17:01