BORGARBÓKASAFNIÐ

Borgarbókasafnið býður upp á spennandi ókeypis viðburði í haust þar sem fólk getur komið saman og æft sig í íslensku í öruggu umhverfi undir leiðsögn reyndra tungumálakennara og rithöfunda. Einstakt tækifæri fyrir þau sem vilja ná betri tökum á tungumálinu í gegnum samveru, sköpun og leik.
Samvera
Spjallað er saman í göngutúrum um Elliðaárdalinn þegar veður leyfir eða innandyra þar sem æfingin felst í að lesa saman fréttir á auðskiljanlegri íslensku um það sem hæst ber í þjóðfélaginu hverju sinni.
Staðsetning: Borgarbókasafnið Gerðubergi
Tímasetning: Alla föstudaga kl. 11:00 –13:00.
Spjöllum með hreim
Skipt er upp í hópa eftir getustigi. Spiluð eru borðspil, spjallað er um bókmenntir og farið í safnaheimsóknir.
Staðsetning: Borgarbókasafnið Grófinni
Tímasetning: Alla laugardaga kl. 11:30-13:30
Samljóða
Opnar ritsmiðjur fyrir þau sem vilja rækta tengsl sín við íslenska tungu með skapandi hætti undir leiðsögn þriggja rithöfunda; Karólínu Rós Ólafsdóttur, Maó Alheimsdóttur og Marjón.
Staðsetning: Borgarbókasafnið Grófinni
Tímasetning: Alla miðvikudaga kl. 16:30-18:00
Lopi og orð
Notalegar stundir fyrir þau sem hafa gaman af handverki og vilja æfa sig að tala íslensku í afslappaðri og notalegri stemningu á bókasafninu. Á vegum Huldumáls, félags stúdenta í íslensku sem öðru máli.
Staðsetning: Borgarbókasafnið Grófinni
Tímasetning: Einn sunnudag í mánuði frá kl. 15:00-16:30
Hægt er að fylgjast með dagskránni í hér á heimasíðunni eða á Facebook síðu Borgarbókasafnsins.
Þátttaka er ókeypis, öll velkomin, jafnt byrjendur sem lengra komin. Engin skráning!
Nánari upplýsingar veitir:
Fanny Sanne Sissoko, verkefnastjóri inngildingar og fræðslu
fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is | 411 6148