BORGARBÓKASAFNIÐ
Alla föstudaga 4. september - 4. desember, kl. 11.00 til 13.00, Gerðuberg

Saman kynnumst við yfir kaffibolla og spjöllum til að æfa okkur í tungumálinu í öruggu og vinalegu umhverfi eða bara til að kynnast nýju fólki. Stundum förum við í léttan göngutúr í nágrenninu og í Elliðaárdalnum.
Þegar veðrið er mjög slæmt erum við inni til að lesa fréttir á auðskiljanlegri íslensku, ræða um hvað er að gerast á Íslandi og læra um mikilvæg málefni sem gætu haft áhrif á okkur. Einnig verður í boði að spila borðspil.
Bókasafnið er á efri hæðinni í húsi við Gerðuberg 3-5 í Breiðholti.
Strætóar: 3, 4, 12, 17 (stoppistöð: FB).
Viðburðirnir eru leiddir af kennurum í íslensku sem annað mál.
Þátttaka ókeypis, engin skráning, bara mæta.
Fanny Sissoko, Verkefnastjóri inngildingar og fræðslu
fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is
Samvera er styrkt af Þróunarsjóði innflytjenda.
Samljóða
Skapandi Ritsmiðjur ætlaðar öllum sem vilja rækta tengsl sín við íslenska tungu með skapandi hætti.
Alla miðvikudaga, 9. september - 25. nóvember, kl. 16:30-18:00 - Grófin
Spjöllum með hreim
Fjölbreyttar samverustundir fyrir þau sem vilja æfa sig að tala íslensku í vinalegu umhverfi.
Alla laugardaga, 5. september - 12 desember, kl. 11:30-13:30, Grófin.