Mýrin | Alþjóðleg barnabókmenntahátíð í Reykjavík
Borgarbókasafnið á fulltrúa í stjórn Mýrarinnar, alþjóðlegrar barnabókmenntahátíðar sem haldin hefur verið svo til annað hvert ár í Norræna húsinu frá 2001. Dagskrá hátíðarinnar er afar fjölbreytt og höfðar bæði til barna og fullorðinna, leikmanna og fræðimanna sem hafa áhuga á bókmenntum og bókmenntatengdum viðfangsefnum.
Mýrarhátíðarnar byggja á fjölbreyttri dagskrá með þátttöku höfunda og fræðimanna, innlendra og erlendra. Meðal atriða má nefna:
- Upplestrar og kynningar í Norrræna húsinu
- Fyrirlestrar höfunda og höfundaspjall
- Pallborðsumræður og fyrirlestrar bókmenntafræðinga
- Sýningar og vinnustofur
- Önnur menningardagskrá í samræmi við þema hverju sinni
Félagið sem stendur að hátíðinni heitir Mýrin – félag um barnabókmenntahátíð og eftirtaldar stofnanir og samtök mynda félagið: IBBY á Íslandi, SÍUNG (Samtök barna- og unglingabókahöfunda), Rithöfundasamband Íslands, Háskóli Íslands, Borgarbókasafnið og Norræna húsið.
Næsta hátíð fer fram í Norræna húsinu dagana 7.-10. október 2021!
Fylgist með á myrin.is og á Facebooksíðu hátíðarinnar.