Flottustu myndirnar

Í febrúar og mars er börnum á aldrinum 6-12 ára boðið að kjósa hvaða myndir þeim þykja flottastar úr barna- og unglingabókunum.

Myndir segja meira en þúsund orð! Myndir lýsa því sem er að gerast í sögunni án orða. Þær geta verið fyndnar, óhugnalegar, sorglegar eða sýnt okkur skemmtileg smáatriði sem ekki standa í textanum.

Börn í 1.-7. bekk eru hvött til að skoða vel myndirnar í bókunum eftir myndhöfunda sem búa og starfa á Íslandi.  Tilnefndar bækur eru á veggspjaldinu Flottustu myndirnar.  Börnin velja þrjár bækur með þeim myndum sem þeim finnst skemmtilegastar, áhugaverðastar eða bestar af hvaða ástæðu sem er.  Kosningin er frá 9. febrúar til 13. mars samhliða kosningunni Bókaverðlaun barnanna.  Boðið verður upp á rafræna kosningu hér á síðunni en einnig munu skóla- og almenningsbókasöfn um allt land vera með kjörseðla og -kassa. Hér verður hægt að nálgast körseðla. Þeir koma í byrjun febrúar 2026. Börnin geta merkt kjörseðlana og hvetjum við söfnin til þess að draga út heppinn þátttakenda og veita viðurkenningu fyrir þátttöku. Við biðjum öll þátttökusöfn og -skóla um að skrá atkvæðin sín í talningarskjal (excelskjal væntanlegt) og senda sínar lokatölur fyrir 19. mars 2026 til verkefnastjóra verkefnisins. 

Myndlýsingarnar sem verða í efstu fimm sætunum verða í kosningu Sagna á vef Sagna -  sogur.is. Verðlaunahátíðin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV 30. maí 2026.

 

Tilnefningar 

2025 (í stafrófsröð) - Vinningshafi á Sögum - verðlaunahátíð barnanna er feitletraður.

  • Bekkurinn minn - Hendi!: Iðunn Arna Björgvinsdóttir
  • Fíasól í logandi vandræðum: Halldór Baldursson
  • Orri óstöðvandi: Heimsfrægur á Íslandi: Þorvaldur Sævar Gunnarsson
  • Skólaslit 3 - Öskurdagur: Ari H.G. Yates og Lea My Ib
  • Stúfur og Björgunarleiðangurinn: Blær Guðmundsdóttir

Veggspjald

2025 JPG / PDF