Information about the event

Time
13:00 - 16:00
Price
Free
Language
Mörg tungumál
Creative Technology

Reddingakaffi: rafrænar viðgerðir + fleira

Sunday March 1st 2026

Verið velkomin á sérstaka Framtíðarfestivals útgáfu Reddingakaffis. Við munum einbeita okkur að viðgerðum á raftækjum svo komið með snjallsíma, fartölvur og önnur raftæki sem þarfnast viðgerðar!
Reddingakaffi er mánaðarlegur viðburður þar sem sjálfboðaliðar og þátttakendur koma saman til að gera við hluti og draga úr sóun.

Taktu með þér hlut sem þér þykir vænt um en er af einhverri ástæðu ónothæfur — fatnað, raftæki, brotinn bolla eða leka loftdýnu — og njóttu ókeypis viðgerða, kaffis og góðs félagsskapar. Gerum við þetta saman!

Viðburðurinn á Facebook

Framtíðarfestivalið fer fram 1. mars til 14. mars 2026 á Borgarbókasafninu Grófinni (í miðbænum).
Allir viðburðirnir eru ókeypis og opnir öllum. Dagskrána má finna HÉR

Frekari upplýsingar:
Martyna Karolina Daniel, Project Manager of Equity and Community Engagement
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is