
Information about the event
Time
15:00 - 16:00
Price
Free
Library
Target
Adults
Language
-
Past Events
Lindy Hop kennsla
Saturday September 6th 2025
Kennarar frá Sveiflustöðinni kenna byrjendum paradansinn Lindy Hop sem er svokallaður social dans, þar sem dansað er við aðra dansara við undirtóna sveifludjassins.
Ókeypis þátttaka og öll velkomin, ekki þarf að mæta með dansfélaga.
Tilvalið að brjóta upp dagskrána á laugardegi og prufa eitthvað nýtt! Hittumst í góðri sveiflu á Torginu, 1. hæð í Grófinni.
Sveiflustöðin er dansskóli sem sérhæfir sig í sveifludönsum sem dansaðir eru við iðandi djasstóna í anda þriðja og fjórða áratugarins. Má þar nefna dansa á borð við lindy hop, charleston og balboa en einnig boogie woogie og solo jazz auk annarra dansstíla.
Fyrir nánari upplýsingar:
sveiflustodin@gmail.com