
Information about the event
Leikhúskaffi | Svartþröstur
Vignir Rafn Valþórsson leikstjóri segir gestum frá uppsetningu Borgarleikhússins á leikritinu Svartþresti eftir David Harrower. Í kjölfarið verður farið yfir í Borgarleikhúsið og þar fá gestir stutta kynningu á leikmynd og annarri umgjörð sýningarinnar. Í lokin býðst gestum 10% afsláttur af miðum á sýninguna.
Borgarbókasafnið Kringlunni og Borgarleikhúsið hafa boðið upp á leikhúskaffi í nokkur ár þar sem leiksýningar eru kynntar fyrir áhugasömum stuttu fyrir frumsýningu.
Svartþröstur er átakanlegt og áleitið verk eftir eitt fremsta leikskáld Skota síðustu áratuga. Skrifstofumaður á miðjum aldri fær heimsókn frá ungri konu, sem leitar eftir uppgjöri vegna sambands þeirra mörgum árum áður. Hann á að baki fangelsisdóm, hefur hafið nýtt líf undir nýju nafni og tilviljun ein gerir það að verkum að konan hefur uppi á honum. Bæði eru þau þjökuð af fortíðinni sem hefur markað djúp spor í tilvist þeirra. Hún hefur setið föst í sömu sporum í fimmtán ár á meðan hann hefur reynt að byrja upp á nýtt, en þegar hún birtist er ljóst að hið liðna verður ekki flúið.
Leikhúskaffið er ókeypis, öll velkomin.
Nánari upplýsingar veitir:
Guttormur Þorsteinsson, deildarbókavörður
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | s. 411 6204
Halla Björg Randversdóttir, Fræðslu- og verkefnastjóri
hallabjorg@borgarleikhus.is