Ferðakaffi | Lifum lengi, betur
Ferðakaffi | Lifum lengi, betur

Information about the event

Time
17:30 - 18:30
Price
Free
Target
Adults
Past Events

FRESTAÐ Ferðakaffi | Lifum lengi, betur

Thursday May 27th 2021

Vinsamlegast athugið að viðburðinum hefur verið frestað um óákveðinn tíma.

Guðjón Svansson og Vala Mörk frá Njóttu ferðalagsins fóru ásamt tveimur yngstu sonum sínum í fimm mánaða rannsóknarferðalag og sóttu heim „Blue Zone“ svæði heimsins, en íbúar þeirra eru þekktir fyrir langlífi og góða heilsu. Í fyrirlestrinum segja þau Guðjón og Vala frá því hvað helst hefur stuðlað að löngu og góðu lífi íbúa á þessum svæðum og hvað þau eiga sameiginlegt. Þau munu tala um hvað við Íslendingar getum lært af þessum samfélögum til þess að fyrirbyggja kulnun og streitu og auka vellíðan og hamingju fólks heima og í vinnu.

Lykilatriði í því að lifa lengi og vel er að einfalda lífið og njóta þess betur. “Lifum lengi, betur” hjálpar þátttakendum að finna leiðir til þess.

Nánari upplýsingar veitir:

Guttormur Þorsteinsson, deildarbókavörður
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is