Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur
Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur

Information about the event

Time
17:15 - 18:00
Price
Free
Target
Adults
Past Events

Fræðakaffi | Konur sem afneita móðurhlutverkinu í þjóðsögum

Monday April 25th 2022

Móðurhlutverkið hefur löngum verið talið mikilvægasta hlutverk kvenna. Konur sem kjósa sjálfar að eignast ekki börn hafa gjarnan verið litnar hornauga, og eru jafnvel enn í dag.

Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur kannar birtingarmyndir kvenna í íslenskum þjóðsögum og tekur sérstaklega til skoðunar konur sem fóru gegn ríkjandi hugmyndum um hlutverk kvenna. Hvað geta þjóðsögurnar sagt okkur um viðhorfin til barnleysis kvenna á öldum áður? Dæmi eru í sögunum um ógiftar konur sem eignuðust börn og báru þau út, þá gengu börnin aftur og refsuðu mæðrum sínum fyrir glæpinn, eins og í sögunni Móðir mín í kví kví. Og hvað með giftar konur sem kusu að vera barnlausar, hvernig eru viðhorfin gagnvart þeim í sögunum?

Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is