Björk Bjarnadóttir og Kúmen
Fræsafnsopnun

Information about the event

Time
17:30 - 18:30
Price
Free
Target
Adults
Language
Íslenska
Learning

Fræsafnsopnun | Kúmen

Thursday March 12th 2026

Kúmen plantan geymir í sér margar sögur.

Fræsafn Borgarbókasafnsins í Kringlunni verður sett fram annað árið í röð og plöntuskiptamarkaður opnaður með pompi og prakt. Björk Bjarnadóttir, umhverfis-þjóðfræðingur og sagnaþula mun koma og segja frá kúmen plöntunni (Carum carvi).

Björk hefur leitt kúmen göngu í Viðey um árabil en þar koma um 400 manns til að tína kúmen með vinum og ættingjum ásamt því að njóta eyjunnar og fræðast um plöntuna, út frá mörgum hliðum.

Björk mun í erindi sínu segja frá sögu plöntunnar, hvernig skuli tína, verka og nýta kúmen. Einnig verður fjallað um nytjar hennar, lækningarmátt og hvernig skuli setja upp lítinn kúmengarð heima við hús eða í grænmetisgarðinum.

Eitt aðal áhugamál Bjarkar er að fræða um náttúruna og þá oft um plöntur út frá fornri þekkingu sem eitt sinn var algild þekking. Áheyrendur mega búast við að fá mikinn áhuga á plöntum og garðrækt eftir erindið. Takið endilega með ykkur minnisbók og skriffæri.

Öll velkomin og við hlökkum til að sjá ykkur.

Viðburðurinn á Facebook

 

Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður María Bjarnardóttir, sérfræðingur
holmfridur.maria.bjarnardottir@reykjavik.is | 411 6202

Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204