Information about the event

Time
13:30 - 14:45
Price
Free
Target
Children
Ages
7-12 ára
Language
íslenska
Literature
Children

Vetrarfrí | Barnabókakviss

Sunday February 22nd 2026

Hvað heitir besti vinur Kidda Klaufa? Veistu bílnúmerið á bílnum hans Andrésar Andar?

Ef þessar spurningar vekja áhuga þinn og kveikja í keppnisskapinu, þá er barnabókakvissið á Borgarbókasafninu eitthvað fyrir þig.

Boðið verður upp á stórskemmtilegt og barnvænt pöbbkviss með áherslu á barnabókmenntir. Spurningarnar eru viðráðanlegar, aðgengilegar og í valmöguleikaformi, þannig að allir geta tekið þátt án þess að þetta verði ýkja flókið. Kvissið hentar sérstaklega vel fyrir börn á aldrinum 7–12 ára og foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir með.

Þemað að þessu sinni eru vinsælustu erlendu barnabækurnar og kvissið er jafnframt skemmtilegt tækifæri til að kynnast bæði nýjum og gömlum sígildum bókum. Það verða vinningar í boði sem allir eiga möguleika á að hreppa! 

Þátttaka er ókeypis og engin skráning nauðsynleg – bara mæta, taka þátt og hafa gaman.
 

Hér má skoða heildardagskrá Borgarbókasafnsins í Vetrarfríinu!

Viðburður á Facebook.
 

Nánari upplýsingar veitir:

Alexander Sigurðarson, sérfræðingur 
alexander.sigurdarson@reykjavik.is