
Information about the event
Leshringurinn Ýmislegt | Seint og um síðir, jólabækurnar
Hefur þú gaman af lestri skemmtilegra bóka? Þá er þetta eitthvað fyrir þig.
Leshringurinn Ýmislegt hentar öllum þeim sem hafa áhuga á að hitta annað fólk og spjalla um bækur á léttum nótum. Lesa á milli línanna og leyfa sér að láta hugann reika. Lesin er ein bók á mánuði auk einnar smásögu/smáprósa. Bækurnar geta verið af ýmsum toga, eftir íslenska jafnt sem erlenda höfunda.
Hópurinn hittist á þriðjudögum einu sinni í mánuði í Borgarbókasafninu Árbæ kl. 16.30 - 17:30.
Skráning ekki nauðsynleg. Verið velkomin!
Leslistinn á vorönn:
13. janúar
Seint og um síðir, eftir Claire Keegan
Það sem lesið var um jólin
17. febrúar
Inngangur að efnafræði, eftir Bonnie Garmus
17. mars
Þegar sannleikurinn sefur, eftir Nönnu Rögnvaldardóttur
14. apríl
Mín er hefndin, eftir Nönnu Rögnvaldardóttur
12. maí
Hansdætur, eftir Benný Sif Ísleifsdóttur
Sjá yfirlit yfir leshringi Borgarbókasafnsins
Nánari upplýsingar veitir:
Kristín Guðbrandsdóttir, sérfræðingur
kristin.gudbrandsdottir@reykjavik.is | 411 6250