Sigvaldi Helgi Gunnarsson syngur lög söngvaskálda í Borgarbókasafninu
Sigvaldi Helgi Gunnarsson syngur lög söngvaskálda

Information about the event

Time
13:15 - 14:00
Price
Free
Target
Everyone
Language
Íslenska English
Music

Dægurflugur í hádeginu I Sigvaldi syngur sögur söngvaskálda

Saturday March 21st 2026

Borgarbókasafnið Gerðubergi 20. mars kl. 12.15-13.00
Borgarbókasafnið Spönginni 21. mars kl. 13.15-14.00

Á tónleikunum Dægurflugur í hádeginu er þemað söngvaskáld þar sem leikin verða lög eftir innlent sem erlent tónlistarfólk.   

Sigvaldi Helgi Gunnarsson mun varpa ljósi á margvíslegar aðferðir við lagasmíð og segja frá tildrögum ljóðanna, en mörg þeirra eiga áhugaverða sögu sem eykur á dýpt þeirra.   

Sigvaldi er uppalinn í Skagafirði og tók sín fyrstu skref í tónlist þar. Hann hefur frá unga aldri komið fram á sviði, einsamall eða með hljómsveit, og flutt tónlist fyrir sveitunga sína. Hann hefur leikið á þorrablótum, afmælum, brúðkaupum, útförum, öldrunarheimilum og skólum, börum og svo mætti lengi telja.  

Sigvaldi er söngvari og gítarleikar og hefur komið víða við á sínum ferli, ma. komst hann árið 2015 í úrslit The Voice.  

Árið 2024 gaf hann út smáplötuna Up North sem inniheldur frumsamin lög og texta. Slagorðið hans er ,,Tónlist við flest tilefni”  

Á tónleikunum spilar Sigvaldi á gítar og með honum verður Leifur Gunnarsson á kontrabassa en hann er jafnframt listrænn stjórnandi tónleikanna.  

Dægurflugur í hádeginu er tónleikaröð sem Borgarbókasafnið stendur fyrir í samstarfi við Leif Gunnarsson kontrabassaleikara. Þar kemur fram margt af okkar helsta tónlistarfólki og á tónleikunum gefst Reykvíkingum tækifæri til að koma saman, hitta félaga, njóta tónlistar og spjalla við tónlistarfólkið eftir tónleika. 

Markmiðið er fyrst og fremst að færa metnaðarfulla tónlist út í hverfi borgarinnar þannig að fólk geti notið hennar í eigin nærumhverfi og á eigin forsendum. 

Nánar um Sigvalda: instagram.com/sigvaldihelgi/ 
Nánar um Leif hér: www.lgtonar.com 

Frítt er inn á tónleikana og eru öll hjartanlega velkomin. 

Nánari upplýsingar veita: 
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða 
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is  I S: 8681851 

Leifur Gunnarsson 
leifurgunnarsson@gmail.com | S: 868 9048