
Information about the event
Dægurflugur í hádeginu I Sigvaldi syngur sögur söngvaskálda
Borgarbókasafnið Gerðubergi 20. mars kl. 12.15-13.00
Borgarbókasafnið Spönginni 21. mars kl. 13.15-14.00
Á tónleikunum Dægurflugur í hádeginu er þemað söngvaskáld þar sem leikin verða lög eftir innlent sem erlent tónlistarfólk.
Sigvaldi Helgi Gunnarsson mun varpa ljósi á margvíslegar aðferðir við lagasmíð og segja frá tildrögum ljóðanna, en mörg þeirra eiga áhugaverða sögu sem eykur á dýpt þeirra.
Sigvaldi er uppalinn í Skagafirði og tók sín fyrstu skref í tónlist þar. Hann hefur frá unga aldri komið fram á sviði, einsamall eða með hljómsveit, og flutt tónlist fyrir sveitunga sína. Hann hefur leikið á þorrablótum, afmælum, brúðkaupum, útförum, öldrunarheimilum og skólum, börum og svo mætti lengi telja.
Sigvaldi er söngvari og gítarleikar og hefur komið víða við á sínum ferli, ma. komst hann árið 2015 í úrslit The Voice.
Árið 2024 gaf hann út smáplötuna Up North sem inniheldur frumsamin lög og texta. Slagorðið hans er ,,Tónlist við flest tilefni”
Á tónleikunum spilar Sigvaldi á gítar og með honum verður Leifur Gunnarsson á kontrabassa en hann er jafnframt listrænn stjórnandi tónleikanna.
Dægurflugur í hádeginu er tónleikaröð sem Borgarbókasafnið stendur fyrir í samstarfi við Leif Gunnarsson kontrabassaleikara. Þar kemur fram margt af okkar helsta tónlistarfólki og á tónleikunum gefst Reykvíkingum tækifæri til að koma saman, hitta félaga, njóta tónlistar og spjalla við tónlistarfólkið eftir tónleika.
Markmiðið er fyrst og fremst að færa metnaðarfulla tónlist út í hverfi borgarinnar þannig að fólk geti notið hennar í eigin nærumhverfi og á eigin forsendum.
Nánar um Sigvalda: instagram.com/sigvaldihelgi/
Nánar um Leif hér: www.lgtonar.com
Frítt er inn á tónleikana og eru öll hjartanlega velkomin.
Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is I S: 8681851
Leifur Gunnarsson
leifurgunnarsson@gmail.com | S: 868 9048