
Um þennan viðburð
Smásmiðja | Hvað er núritun – Live Coding?
Í þessari Smásmiðju notum við forritið Strudel til að prófa okkur áfram í núritun eða „live coding“. Strudel er ókeypis vefforrit sem gerir núriturum kleift að kóða, semja og flytja tónlist á mjög einfaldann hátt. Þátttakendur smiðjunar munu læra grunnatriði í forritun og fá leiðsögn í tónsmíðum. Eftir smiðjuna gefst tími til að prófa sig áfram og fá aðstoð við að núrita.
Hvað er „Live Coding“?
„Live Coding“ eða núritun er skapandi nálgun á forritun þar sem flytjandinn býr til tónlist eða myndlist með því að skrifa, breyta og meðhöndla kóða í rauntíma, venjulega fyrir framan áhorfendur.
Á síðustu áratugum hefur þessi iðkun orðið að kraftmikilli skapandi listgrein á menningar- og tæknisviðum, meðal annars í tónlist, myndlist og tölvunarfræði. Í núritun fer sköpunin og tónsmíðin fram í rauntíma. Flytjandinn getur haft áhrif á flutninginn með myndefni, hreyfingu eða hverju sem er sem hægt er að stjórna. Kóðanum er oft varpað á skjá þar sem áhorfendur geta fylgst með.
Smásmiðjur | Opnir aðstoðartímar á Verkstæðinu Grófinni
Í Smásmiðjunum lærum við allt milli himins og jarðar sem tengist skapandi tækni og tölvuvinnslu. Á Verkstæðinu eru fullbúnar tölvur með öllum helstu forritum fyrir myndvinnslu, tónlistarsköpun eða hljóðvinnslu og tilvalið að mæta í Smásmiðjurnar fyrir þau sem langar að læra á forritin og nýta sér búnaðinn.
Við kynnumst einhverju nýju í Smásmiðjunum annan hvern mánudag frá kl. 16:30–17:30. Eftir tímann verður starfsfólk til staðar til að aðstoða með hvað sem er til kl. 18:00.
Engin skráning, bara mæta!
Nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Gestsson, sérfræðingur Tónlistardeildar
valgeir.gestsson@reykjavik.is | 411 6100