Um þennan viðburð

Tími
19:30 - 21:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
English
Skapandi tækni

Make-a-thek | Rafmagnaður textíll með Emma Shannon

Miðvikudagur 4. febrúar 2026

Í þessari smiðju munum við kynnast raftextíl (e-textile). Við munum læra grunnatriði þess að sameina textíl og einfalda rafeindatækni. Í smiðjunni kynnir leiðbeinandinn, Emma Shannon, leiðandi efni (conductive materials), mjúkar rafrásir og skapandi nálganir við saumaskap, smíði og tilraunir með textíltengda tækni.

Engin fyrri reynsla er nauðsynleg, vinnustofan er ætluð byrjendum og öllum sem hafa áhuga á textíl, list, hönnun eða STEAM. Að lokinni vinnustofunni munt þú hafa betri skilning á raftextílum og sjálfstraust til að hefja eigin tilraunir.

Emma Shannon er skosk textíllistakona og hönnuður búsett í Reykjavík. Verk hennar kanna mörk klæðanlegrar tækni og hefðbundins handverks. Með því að sameina verklega sköpun og nýja tækni sérhæfir hún sig í að skapa aðgengileg, þverfagleg rými sem hvetja til tilraunastarfs og framtíðarmiðaðra lausna fyrir sjálfbærni og skapandi samvinnu. Sem hluti af Endurtakk og  samfélaginu á bakvið reddingarkaffi hefur áhersla hennar verið á skapandi endurnýtingu, viðgerðir og endurhugsun á staðbundnum textíl og fatnaði.

Viðburður á facebook

 

Borgarbókasafnið Gerðubergi er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist Make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Atli Pálsson, sérfræðingur
atli.palsson@reykjavik.is | 411-6170