Um þennan viðburð
Kynning | Húsnæðisátak í Grafarvogi
Opið hús um húsnæðisátak í Grafarvogi verður í Borgarbókasafninu Spönginni fimmtudaginn 26. september kl. 17-19.
Tillögur að íbúðalóðum fyrir Grafarvog liggja nú fyrir en leiðarljós verkefnisins er að ný byggð falli vel að núverandi byggðarlandslagi.
Sem hluti af breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur vegna húsnæðisátaks í Grafarvogi boðar umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur til opins húss þar sem tillögur tengdar átakinu verða til sýnis.
Verklýsing aðalskipulagsbreytinganna er nú í kynningu en hægt er að nálgast gögnin í gátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is. Þar er hægt að skila inn formlegum athugasemdum, ábendingum og umsögnum til 15. október næstkomandi.
Frekari upplýsingar um húsnæðisátakið má finna á www.reykjavik.is/husnaedi
Tillögurnar má skoða á opnunartíma safnsins til 10. október.
Öll velkomin.