Bakhlið á konu sem er að vinna í vínylskera

Um þennan viðburð

Tími
15:00 - 17:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Aldur
8 ára og eldri
Börn
Föndur

Vínylskerasmiðja

Fimmtudagur 2. febrúar 2023

Komdu og prófaðu vínylskerann!

Boðið verður upp á að prenta límmiða í ýmsum litum til að líma á vegg/glugga eða annað yfirborð, t.d. símahulstur, tölvur, brúsa og stílabækur. 

Allt efni í límmiða verður til staðar en þau sem mæta þurfa sjálf að taka með hluti sem þau vilja skreyta.

Smiðjan er opin en starfsmaður bókasafnsins verður á staðinum til að leiðbeina.
Ekki þarf að eiga bókasafnskort, engrar reynslu krafist og engin skráning, bara mæta.
Börn og fullorðin velkomin en börn yngri en 8 ára mæti í fylgd með fullorðnum.

Opnar smiðjur eru  í Úlfarsárdal 1. fimmtudag hvers mánaðar milli kl. 15:00-17:00.

 

Viðburður á Facebook.

 

Nánari upplýsingar:

Sendu tölvupóst á netfangið ulfarsa@borgarbokasafn.is