Klúbbur | Fyrir alla Anime aðdáendur
Þessi glænýji klúbbur er ætlaður krökkum á aldrinum 13-16 ára sem hafa brennandi áhuga á Anime.
Miðvikudaginn 3. febrúar hittist klúbburinn í fyrsta sinn í Gerðubergi ásamt leiðbeinanda og við kynntum hvað klúbburinn getur haft fyrir stafni. Á Verkstæðinu í Gerðubergi er til dæmis hægt að gera merki, prenta á boli og þrívíddaprenta svo eitthvað sé nefnt. Svo verða að sjálfsögðu skipulagðar bíósýningar, teiknismiðjur, kynningar á Anime bókum og japanskri menningu og bara hvað sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera næst!
Við tökum vel á móti ykkur öllum.
Það er auðvitað ekkert þátttökugjald, en skráning nauðsynleg.
Ef þið hafið áhuga á að vera með í klúbbnum, þá vinsamlegast sendið póst á holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is