
Um þennan viðburð
Leshringur - Lífsgæðahringur
Lífsgæðaleshringirnir eru verkefni á vegum Estherar Ágústsdóttur hjá Bókmenntaskólanum sem sameinar bókmenntir og jafningastuðning til að efla andlega heilsu og lífsgæði þátttakenda. Í hringjunum eru lesnar sögur sem snerta á andlegri vellíðan, sjálfsstyrkingu, sjálfsmynd, tengslum og ýmsu tengt bataferli. Fyrsta bókin sem verður tekin fyrir er Kvöldsónatan eftir Ólaf Jóhann Ólafsson.
Lífsgæðahringirnir fara fram í Borgarbókasafninu Sólheimum 4. fimmtudag í mánuði frá kl. 19:30 - 21:00, frá 22. janúar - 28. maí 2026.
Markmið verkefnisins eru skýr:
- að auka andlega vellíðan
- draga úr félagslegri einangrun
- efla sjálfsmynd
- gefa þátttakendum ný tól til að vinna með lífsreynslu sína á skapandi hátt
Með Lífsgæðaleshringjunum fá sögur nýtt líf — og verða að brú milli einstaklinga, hugmynda og betri lífsgæða.
Sjá yfirlit yfir leshringi Borgarbókasafnsins
Nánari upplýsingar og skráning:
Esther Ágústsdóttir, kennari og bókmenntafræðingur
bokmenntaskolinn@gmail.com | 868 0882