Sleipnir

Um þennan viðburð

Tími
10:00 - 11:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
0-3 ára
Tungumál
Íslenska
Bókmenntir
Börn
Fræðsla

FRESTAÐ - Krílastundir

Föstudagur 17. janúar 2025

Þriðja föstudag í mánuði ætlum við að hafa notalega morgunstund hér á bókasafninu í Kringlunni. Njótum samveru, spjöllum og leikum með litlu krílunum.
Hér skapast gott tækifæri til að kynnast öðrum með lítil börn og skiptast á sögum um lífið og tilveruna. Dagskráin er áætluð út frá börnum á aldrinum 0-3 ára en auðvitað eru öll velkomin.

Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna, sem hægt er að glugga í á safninu og korthafar geta gripið með sér heim.
Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!

Krílastundirnar hefjast klukkan 10:00. Athugið að safnið opnar ekki fyrr en 11:00, svo starfsmaður verður við dyrnar og hleypir ungbörnum og fylgifiskum inn.

17. janúar - FRESTAÐ

21. febrúar

21. mars

25. apríl

16. maí

Heitt kaffi og te í boði.

Sjáumst!

Viðburður áFacebook
 

Nánari upplýsingar veitir
Brynhildur Lea Ragnarsdóttir, Barnabókavörður
brynhildur.lea.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411-6200