Gengur þú með jólasögu í maganum?
Við óskum eftir umsóknum frá rit- og myndhöfundum fyrir jólasögu Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar 2019
ATHUGIÐ FRAMLENGDAN UMSÓKNARFREST!
Frá árinu 2016 hefur Borgarbókasafnið birt jóladagatal fyrir börn á á leikskóla-og grunnskólaaldri á miðlum safnsins þar sem foreldrar og/eða börn geta lesið saman einn kafla á dag frá 1. – 24. desember. Jóladagatalið er aðgengilegt á vefsíðu og facebook síðu Borgarbókasafnsins og á vef Bókmenntaborgarinnar. Sagan er einnig lesin inn í Hlaðvarp Borgarbókasafnsins.
Umsóknarfrestur er til og með 9. september n.k.
(var áður 15. ágúst)
Í umsókn er æskilegt að setja fram hugmynd að efnistökum sögunnar og sýnishorn af teikningum.
Vinsamlegast sendið umsóknina á gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is.
Rit- og myndhöfundar þurfa að skila inn fullbúinni sögu í 24 köflum, mynd við hvern kafla auk forsíðumyndar 15. október n.k.
Sagan á að vera ca 7-8000 orð, hver kafli ca 3-400 orð.
Forsíðumyndin verður jafnframt notuð á bókamerki og veggspjald til kynningar á dagatalinu.
Rit- og myndhöfundar fá greiddar 200.000 kr. hvor fyrir söguna og teikningarnar.
Jólasagan er kynnt með bókamerki og veggspjöldum sem dreift er í menningarhús Borgarbókasafnsins og boðið verður upp á sögustundir í desember.
Jóladagatöl Borgarbókasafnsins:
Jóladagatal Borgarbókasafnsins 2016
Varúð, varúð! Jólin eru á leiðinni
Sigrún Eldjárn, rit- og myndhöfundur
Jóladagatalið Borgarbókasafnsins 2017
Jósa, Katla og jólasveinarnir
Þórarinn Leifsson, rit- og myndhöfundur
Jóladagatalið Borgarbókasafnsins 2018
Sögur af Zetu | Ullarsokkar í jólasnjó
Eva Rún Þorgeirsdóttir rithöfundur og Ninna Þórarinsdóttir myndhöfundur
Jóladagatalið 2019 er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar Reykjavík UNESCO.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri
Fræðslu- og miðlunardeild Borgarbókasafnsins
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | s. 411 6115