Kona og barn í sundlaug
Sundlaugin á Sturlureykjum í Reykholtsdal

Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
íslenska
Fræðsla

Fræðakaffi | Þjóðsiðurinn að fara í sund

Mánudagur 4. nóvember 2024

Sundlaugar eru lifandi almannarými sem mætti allt í senn lýsa sem félagsheimili, líkamsræktarstöð, skólastofu, leikvelli eða heilsulind. Fjallað verður um menninguna sem hefur skapast á milli fólks í sundlaugum landsins, þar sem sundgestir tengjast hver öðrum í heitu vatni á köldu landi. Gufuslæða, klór, hveravatn og passlegur skammtur af fúkkalykt í þurru pottaspjalli um sundlaugamenningu á Borgarbókasafninu.

 Katrín Snorradóttir lauk MA prófi í hagnýtri þjóðfræði frá Háskóla Íslands árið 2021. Lokaverkefni hennar fjallaði um þróun og einkenni sundlaugamenningar á Íslandi og s.l. haust kom út bókin SUND með rannsóknum Katrínar og Valdimars Hafstein þjóðfræðings um þessa uppáhaldsiðju margra Íslendinga.

 

Nánari upplýsingar veita: 
Katrín Snorradóttir, þjóðfræðingur, katsno@gmail.com

Sigríður Stephensen, sérfræðingur, sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is