Nýr vefur og breytingar á notendaþjónustu

Á næstu dögum tökum við í gagnið nýjan vef hér á borgarbokasafn.is.

Þar verða ýmsar breytingar í útliti og framsetningu á efni, en tilgangur vefsins breytist ekki, það er að gefa rétta og skýra mynd af öllu því sem finna má á bókasöfnunum okkar, og auðvelda notendum eftir fremsta megni að nýta sér þjónustu bókasafnsins.

Umfang vefsins kemur til með að minnka nokkuð, miðað við það sem hefur verið hingað til.

Mínar síður” verða ekki hluti af nýja vefnum. Hluti af þeirri notendaþjónustu verður áfram aðgengileg á vefnum borgarbokasafn.leitir.is . Þar er hægt að

  • skrá sig inn með kennitölu og lykilorði eða rafrænum skilríkjum
  • panta frátektir
  • framlengja útlánum
  • skoða útlánasögu
  • og svo framvegis.

Leit í bókasafnskerfinu víkur sömuleiðis en mun áfram eiga heima á borgarbokasafn.leitir.is

Sú þjónusta sem hverfur af vef Borgarbókasafnsins og mun ekki færast á borgarbokasafn.leitir.is er

  • skráning og endurnýjun bókasafnskorta
  • og greiðsla sekta

Þessi þjónusta verður ekki lengur í boði á netinu af hálfu Borgarbókasafnsins, að svo stöddu, en verður að sjálfsögðu sinnt fljótt og vel eftir sem áður af starfsfólki þegar komið er á Borgarbókasafnið. 

Flokkur
UppfærtLaugardagur, 2. maí, 2026 14:35