Græna bókasafnið

Ein af fjórum aðaláherslum í stefnu Borgarbókasafnsins snýst um að setja sjálfbærni í forgrunn alls starfs, stuðla að umhverfisvænum verkefnum og viðburðum og sýna frumkvæði í grænum lausnum.
Öll átta söfn Borgarbókasafnsins eru með fjórða græna skrefið, viðurkenningu Reykjavíkurborgar fyrir vistvænar áherslur, en bókasafnið hefur um árabil lagt mikið upp úr því að vera umhverfisvæn stofnun.
Starfsemi bókasafna er auðvitað í eðli sínu umhverfisvæn, snýst um að deila þekkingu, upplýsingum, rými og hlutum. Í aðgerðaáætlun fyrir stefnu Borgarbókasafnsins til ársins 2028 má kynna sér það sem söfnin eru að vinna að í málaflokknum þessi misserin.
Hvað þýðir að vera grænt bókasafn?
Söfnin átta hafa hvert sína sérstöðu og gera hlutina með sínu nefi en eiga það sameiginlegt að nota öll „umhverfisgleraugun“ í hvívetna.
Fríbúðin
Í Gerðubergi er rekin Fríbúð í samstarfi við Sorpu. Þangað kemur fólk til gefa hluti og taka aðra í staðinn og þar má jafnframt henda ónýtum hlutum í þar til gerða skilakassa. Í Gerðubergi er einnig að finna Fræsafn og starfsfólk hefur í nokkur ár gert tilraunir með ræktun af ýmsu tagi og fer það ekki framhjá þeim sem sækja safnið. Í Fríbúðinni fara einnig fram plöntuskipti því hægt er að koma með afleggjara og plöntur að heiman og skipta þeim út fyrir aðrar tegundir. Smelltu hér til að kynna þér Fríbúðina.
Skiptimarkaðir
Í Árbæ og Sólheimum er gjarnan boðið upp á ýmis konar skiptimarkaði en plöntuskiptimarkaðir á vorin og fræðsla tengd vorverkum í garðinum er alltaf vel sótt.
Fjölbreyttir og fræðandi viðburðir
Í dagskrárgerðinni er mikil áhersla lögð á „græn “ þemu. Í Árbæ, Spönginni og Úlfarsárdal er vinsæl viðburðaröð sem nefnist Tilbúningur. Þar er boðið upp á föndur í góðum félagsskap og eru oftar en ekki umhverfisvænir því lögð er mikil áhersla á hverskonar endurnýtingu efnis í föndrinu. Slíka áhersla er einnig áberandi í hvers kyns föndursmiðjum fyrir börn.
Í Úlfarsárdal er Viku 17 gert hátt undir höfði með fjölbreyttri dagskrá. Um er að ræða alþjóðlegt átak bókasafna sem vekur athygli á 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og byggir á samstarfi bókasafna, einstaklinga og grasrótarsamtaka um sjálfbærni og samfélagsábyrgð.
Framtíðarfestivalið er svo gott dæmi um óhefðbundnari nálgun en þar gefst tækifæri til að staldra við og velta fyrir sér hvernig samfélagið okkar mun þróast til framtíðar.
Hvað er Make-a-thek?
Borgarbókasafnið tekur þátt í evrópska verkefninu Make-a-thek sem snýst um að skapa vettvang fyrir skapandi, forvitna, og meðvitaða neytendur þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir um betri nýtingu á fatnaði. Undir hatti verkefnisins er boðið upp á fjölbreytta viðburði í Gerðubergi, Árbæ og Spönginni.
Fræsafnið
Við hvetjum öll sem eiga afgangs fræ að gefa þau í Fræsafnið og taka sér önnur fræ í staðinn til að auka fjölbreytni í ræktuninni. Boðið er upp á fjölbreytta viðburði fyrir jafnt börn sem fullorðna, sem snúast um ræktun, fræsöfnun og ekki síst það að koma saman, kynnast og deila góðum ráðum í skemmtilegum félagsskap. Fræsafnið er starfrækt í Gerðubergi, Grófinni og Kringlunni. Smelltu hér til að kynna þér Fræsafnið.
Hringrásarsafnið
Í Grófinni, Gerðubergi, Kringlunni og Úlfarsárdal er Hringrásarsafnið þar sem hægt er að fá ýmis gagnleg tól og tæki að láni, frábær kostur í stað þess að kaupa allt, sem svo kannski er bara notað einu sinni eða tvisvar. Smelltu hér til að kynna þér Hringrásarsafnið.
Vistvænar samgöngur
Við hvetjum notendur okkar til að nýta vistvænar samgöngur þegar unnt er, hvort sem það felst í því að ganga oftar á safnið, taka strætó eða deila bíl með öðrum.





