BORGARBÓKASAFNIÐ


Í Fríbúðinni í Gerðubergi eru allir hlutir ókeypis. Þangað er hægt að koma með hluti í góðu ástandi sem nýtast ekki lengur og taka heim með sér það sem vantar. Fríbúðin fylgir opnunartíma Gerðubergs og er staðsett á efri hæð hússins.
Bókasöfn eru í eðli sínu vistvæn og Fríbúðin er eitt af þeim verkefnum sem heyra undir „Græna bókasafnið“. Þar færðu efni að láni og skilar svo aftur inn í hringrásina. Með Fríbúðinni tökum við þetta skrefinu lengra í samstarfi við Sorpu og skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg.
Við hvetjum notendur til að breyta neyslumunstri sínu, kíkja reglulega í Fríbúðina og taka þátt í fræðslu og skemmtilegum viðburðum í Gerðubergi.
Fríbúðin tekur ekki við eftirfarandi:

Skilakassarnir eru fyrir það sem ónýtt er. Ef hluturinn er heill þá á hann heima í Fríbúðinni eða á endurvinnslustöðum Sorpu.
Eftirfarandi endurvinnsluflokkar eru til staðar í Fríbúðinni:

Í Fríbúðinni er kæliskápur opinn almenningi. Í Frískápinn má setja allan neysluhæfan mat. Öllum er frjálst að taka matvæli úr Frískápnum, en neysla matarins er á eigin ábyrgð.

Í Fríbúðinni er gott viðburðarými og við bjóðum upp á fjölbreytta dagskrá sem snýr að skapandi leiðum til að endurnýta alls konar dót, huga að umhverfinu, rækta blóm og jurtir, gera við hluti og gefa þeim nýtt líf. Langar þig að halda eigin viðburð í Fríbúðinni? Við tökum öllum grænum hugmyndum fagnandi!
Í Fríbúðinni finnur þú einnig sjálfsafgreiðsluskápa Hringrásarsafnsins, fulla af allskonar hlutum, sem hægt er að fá að láni. Hringrásarsafnið er í samstarfi við Reykjavík Tool Library. Nánar um Hringrásarsafnið...
