BORGARBÓKASAFNIÐ

Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir bókavörður á Borgarbókasafninu Gerðubergi er forfallin myndasöguaðdáandi enda ólst hún upp í Frakklandi þar sem er rík myndasöguhefð bæði fyrir börn og fullorðna. Það kemur því ekki á óvart að Fnæs eftir Lóu Hjálmtýsdóttur, rit- og myndhöfund, sé sú bók sem Móheiður er ákveðin í að taka með sér í sumarfríið. En hvað er það við verk Lóu sem höfðar til Móheiðar?
„Lóa er með beittan húmor og með einstakan teiknistíl, mjög expressívan og skemmtilegan, svona seventís-eitíslegan,“ svarar hún og segir hvoru tveggja minna á marga af hennar uppáhalds listamönnum svo sem Chagall, Quino og Ilon Wikland. „Ég tengi mjög vel við húmorinn hennar og persónur. Hún er algerlega uppáhalds og ég reyni að lesa allt sem ég kemst í eftir hana og er líka mikill aðdáandi myndlistar hennar.“
Hún viðurkennir að hún sé einfaldlega „fangirl“ þegar hún er spurð af hverju Fnæs hafi orðið fyrir valinu. Lóa sé að hennar mati okkar fremsti myndasöguhöfundur og við séum auk þess ansi heppin að hún sé líka að skrifa fyrir börn.
„Mér finnst allt fyndið og skemmtilegt sem hún teiknar og svo er samfélagsrýni hennar svo hárbeitt, pólitísk og feminísk. Ég elska myndir hennar úr hversdeginum og hef hana grunaða um að standa á gægjum við gluggann heima hjá mér. Lóa er snillingur í að fjalla um breyskleika á fallegan hátt með sjálfsháði og skilningi. Nú svo fjallar hún mikið um háalvarleg mál eins og þjóðarmorð af mannúð og réttsýni.“
Það leynir sér ekki að Móheiður er almennt mikill myndasöguaðdáandi.
„Ég ólst upp í Frakklandi þar sem er rík myndasöguhefð bæði fyrir börn og fullorðna. Þannig að það má segja að ég hafi fengið myndasögur með móðurmjólkinni,“ útskýrir hún og getur þess að þegar hún hafi verið að byrja að lesa hafi hún lesið nánast eingöngu „bédé“ myndasögur, Folda (Mafalda), Ástrík, Sval og Val, Lukku-Láka og Viggó viðutan (Gaston Lagaffe) og fleiri góða félaga. „Myndasögur og húmor er mikið notaður í samfélagsrýni í Frakklandi,“ bendir hún á og segir það oft vanmetið tól í andófi.
Í því samhengi segist Móheiður einmitt hafa orðið mjög hrifin af bókinni Dæs eftir Lóu, þar sem hún teiknaði eina teikningu á dag árið 2020 sem reyndist vera árið sem covid skall á heimsbyggðinni. „Elja Lóu við að dokumentera þennan furðulega nútíma er aðdáunarverður og ég hlakka til að demba mér nú betur í Fnæs!“
Ef þú ættir að velja á milli myndasagna frá Marvel eða DC?
„Marvel bien sûr! Hulk var minn uppáhalds þegar ég var lítil frönsk skotta.“
Eru fleiri bókmenntategundir sem höfðar sérstaklega til þín, eða lestu einfaldlega það sem vekur áhuga þinn hverju sinni?
„Ég les líklega mest ljóð og skáldsögur en er bara alæta á lesmál og mikill bókaormur.“
Hvað er á náttborðinu um þessar mundir?
„Úff, náttborðið er að sligast og kötturinn Coco alltaf að velta þessum hrúgum um koll hjá mér. Ég var að fá lánaðar Lost lambs eftir Madeline Cash og Minor Detail eftir Adania Shibli af Borgarbókasafninu. Er nýbúin að lesa Ótíð í víti eftir Gyrði sem er einkar vel skrifuð bók af stórskáldinu um eigin reynslu af þunglyndi og M train eftir Patti Smith. Síðan bíða doðrantarnir Djöflarnir eftir Dostojevskí og Minnisblöð veiðimanns eftir Turgenev þægir á kantinum. Nú og svo hrannast upp garðyrkjubækurnar á þessum árstíma og af þeim er fyndnust Gardening for the busy, aging and the insolent eftir Ruth Stout.“
Móheiði er ýmislegt til lista lagt, en þegar hún stendur ekki vaktina á Borgarbókasafninu Gerðubergi er hún sjálf önnum kafin, meðal annars við þýðingar og ritstörf.
„Ég er að þýða bók eftir Vonbjörtu Vang færeyskt skáld og yfirbókavörð í Þórshöfn. Bókin heitir Svört orkídea og fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í fyrra. Svo er ég auðvitað með tímamótaljóðabók í smíðum sem kemur mögulega aldrei út nema í hugarfylgsnunum,“ segir hún kímin.
Geturðu mælt með einhverjum ákveðnum bókum fyrir lestrarhesta að taka með sér í fríið?
Móheiður kinkar kolli. „Já svo sannarlega. Ég mæli eindregið með Kajak drekkhlaðinn af draugum, Ínúítasögur eftir Lawrence Millmann. Ég elska þessa bók og get lesið hana aftur og aftur og aftur.“
Hér fyrir neðan má finna lista yfir þær bækur sem Móheiður mælir með og til eru hjá Borgarbókasafni.
Hér má finna frekari upplýsingar um bókakost Borgarbókasafnsins.
Nú þegar margir borgarbúar eru á leið í sumarfrí eða í það minnsta farnir að huga að sumarfríi, er upplagt að kíkja við á Borgarbókasafninu og byrgja sig upp af bókum, plötum, spilum eða öðru skemmtilegu til að skella með í ferðatöskuna. En hvað er sniðugt að taka með úr öllum þeim gersemum sem safnið geymir? Í greinaröðinni Ég fer í fríið leitum við ráða hjá starfsfólki safnsins og biðjum það að mæla með einhverju góðu úr safnkostinum til að taka með í fríið.