BORGARBÓKASAFNIÐ

Skelltu jólaplötu á fóninn á meðan þú hendir í eins og eina sort og fyllir húsið af bökunarilmi en jólatónlist og kökuform er hvoru tveggja hægt að fá að láni á Borgarbókasafninu. Að bakstri loknum er gott að hlamma sér í sófann með góða bók úr jólabókaflóðinu eða horfa á klassíska bíómynd, sem er jafnvel ekki að finna á stóru streymisveitunum en er til í hillum Borgarbókasafnsins. Nú eða bjóða vinum yfir að spila borðspilið sem þú fékst lánað á bókasafninu.
Í aðdraganda jóla er líka fjöldi spennandi viðburða fyrir börn og fullorðna; bókaupplestrar, föndur, markaðir og tónleikar sem má finna í listanum hér fyrir neðan. Einnig halda kunnuglegar samverustundir áfram þótt dagarnir styttist, samhliða því sem skreytingum í gluggum fjölgar; krílastundir, hannyrðahittingar, íslenskutímar og fleira.
Þá eru titlar úr jólabókaflóðinu farnir að birtast jafnt og þétt í hillum bókasafnsins og því um að gera að hafa hraðar hendur ef þig langar að næla þér sem fyrst í eintak en hægt að láta skrá sig á biðlista ef mörg eru að bíða eftir sömu bók.
Komdu inn í hlýjuna og láttu fara vel um þig.