BORGARBÓKASAFNIÐ

Áttundi og síðasti vinningshafinn hefur verið dreginn út í sumarlestursáskorun Borgarbókasafnsins, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og almenningsbókasafna, Gúndi geithafur og grasleitin mikla. Sá heppni heitir Esjar Freysson, 9 ára. Esjar er mikill lestrarhestur og búinn að lesa margar bækur í sumar.
Hver er uppáhaldsbókin þín?
„Orri verður óstöðvandi,“ svarar Esjar. En það er nýjasta Orra óstöðvandi bókin Esjar er sko búinn að lesa þær allar.
Hvar finnst þér best að lesa?
Esjar hugsar sig um. „Bara heima,“ segir hann svo
Hvaða bók mundir þú mæla með fyrir vina þína?
„Skólastjórinn [eftir Ævar Þór Benediktsson],“ svarar hann og hlær við tilhugsunina.
Hvaða bók mundir þú mæla með fyrir fullorðna?
„Ljónadrengurinn; sannleikurinn eftir Zizou Corder,“ segir Esjar, sem er sjálfur að lesa bókina. Hann segir hana skemmtilega og uppfulla af húmor sem hitti pottþétt í mark hjá fullorðnum.
Hvað er skemmtilegast að gera á sumrin?
„Fara út að leika og spila fótbolta, handbolta eða golf,“ telur hann upp.
Hvað gerðir þú skemmtilegt í sumar?
„Ég var mikið út að leika. Fór til útlanda; með fjölskyldunni til Almeríu á Spáni og spilaði á golfmóti í Mosó.“
Við óskum Esjari innilega til hamingju með bókina sem hann hlaut í verðlaun, og vonum að hún verði honum hvatning til að halda áfram að lesa!
Nú í lok sumars, 30. ágúst kl. 14 munum við bjóða öllum börnum sem tóku þátt í sumarlestrinum að mæta í Grófina og fagna með okkur.
Átta heppnir þátttakendur til viðbótar sem fá veitt verðlaun.
Blær Guðmundsdóttir teiknari og myndhöfundur sumarlestursins í ár mun bjóða viðstöddum að taka þátt í skemmtilegum teiknileik þar sem hún skapar á staðnum karakter með hjálp viðstaddra og sinni einstöku kímni.
Komið og fagnið með okkur!
Nánar um sumarlesturinn hér: https://borgarbokasafn.is/sumarlestur-2026-lestrarsprettur-gunda-geithafurs