BORGARBÓKASAFNIÐ
Heppnir þátttakendur fá vinning og fjörug skemmtun fyrir öll. Við kveðjum sumarið með stæl og verðlaunum heppna þátttakendur sumarlestursins. Eftir að við höfum séð hvaða heppnu krakkar fá vinning verður skemmtiatriði. Blær Guðmundsdóttir teiknari og myndhöfundur sumarlestursins í ár mun bjóða viðstöddum að taka þátt í skemmtilegum teiknileik þar sem hún skapar á staðnum karakter með hjálp viðstaddra og sinni einstöku kímni. Komið og fagnið með okkur! Nánari upplýsingar veitir: Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146
Sunnudagur 30. ágúst 2026 – 14:00-14:30
Borgarbókasafnið Grófinni
Tryggvagata 15, 101 Reykjavík