BORGARBÓKASAFNIÐ

Við bjóðum börnum upp á skemmtilega lestaráskorun í sumar í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og almenningsbókasöfn um land allt.
Sumarlesturinn hefst 20. maí og verður til 20. ágúst.
Komdu í næsta Borgarbókasafn og fáðu vegabréf til þess að taka þátt í ævintýrinu með Gúnda geithafri. Fyrir hverjar 15 mínútur af lestri litar þú leiðina í ævintýrakortinu innan í vegabréfinu. Þegar þú hefur náð klukkustund af lestri getur þú farið í næsta Borgarbókasafn með vegabréfið, fengið stimpil og happamiða!
Nú í lok sumars, 30. ágúst kl. 14 munum við bjóða öllum börnum sem tóku þátt í sumarlestrinum að mæta í Grófina og fagna með okkur. Átta heppnir þátttakendur til viðbótar sem fá veitt verðlaun. Blær Guðmundsdóttir teiknari og myndhöfundur sumarlestursins í ár mun bjóða viðstöddum að taka þátt í skemmtilegum teiknileik þar sem hún skapar á staðnum karakter með hjálp viðstaddra og sinni einstöku kímni. Komið og fagnið með okkur!
Teikning og hönnun: Blær Guðmundsdóttir
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir
verkefnastjóri barna- og unglingastarfs - lestrarhvatning og fræðsla
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146