Um þennan viðburð

Tími
10:30 - 11:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Börn

Fjölskyldumorgnar | Krílastund

Mánudagur 15. apríl 2024

In English

Eigum saman notalega stund með yngstu krílunum við leik, spjall og lestur. Klukkan 11 býður starfsmaður upp á söngstund þar sem við kynnum fyrir börnunum þessi gömlu góðu; Fröken ReykjavíkBláu augun þínÉg veit þú kemur og annarri klassík. Það er í boði að koma með óskalög en þau gætu þó þurft að bíða þar til í næstu viku, gítarleikarinn þarf mögulega að dusta rykið af gripunum.

Hér skapast gott tækifæri til að kynnast öðrum með lítil börn og skiptast á sögum um lífið og tilveruna.

Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna, sem hægt er að glugga í á safninu og korthafar geta gripið með sér heim.
Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!

Á fimmtudagmorgnum eru einnig krílastundir í Grófinni en þá óma um barnadeildina Krummi krunkar úti, Lagið um litinaAllir krakkar og fleiri skemmtileg leikskólalög.
Krílastundirnar á fimmtudögum eru á sama tíma og á mánudögum.

 

Staðsetning: Barnadeild á 2. hæð 

Viðburður á Facebook

Allir fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafninu

Kynnið ykkur barnadeildir Borgarbókasafnsins
 

Nánari upplýsingar veitir:
Barbara Guðnadóttir
barbara.gudnadottir@reykjavik.is | s. 411 6100