BORGARBÓKASAFNIÐ

Samtarfsaðilar Framtíðarfestivalsins hittu Pétur Magnússon, umsjónarmann útvarpsþáttarins Samfélagið á Rás 1, og sögðu frá sinni framtíðarsýn og með hvaða hætti þau munu leggja til Framtíðarfestivalsins. Úr samstarfi Samfélagsins og Borgarbókasafnsins varð viðtalaröð sem fór í loftið 14. janúar 2025. Við mælum með að leggja við hlustir, því hér má heyra fjölbreyttar raddir lýsa einstökum framtíðarmöguleikum sem unnið var með á Framtíðarfestivalinu 25. janúar 2025.
Hvernig er framtíðin í okkar huga? Er hún línuleg eða hringlaga? Fyrir framan okkur eða til hliðar? Kannski er hún frekar eins blóm? Kynnst framtíðarhugsuðunum nánar í spennandi viðtölum við Pétur.

Frekari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel
Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is