BORGARBÓKASAFNIÐ

Þriðji vinningshafi sumarlestursins í ár hefur verið dregin út á Borgarbókasafninu. Það er Aðalbjörg Heiður Guðjónsdóttir, 10 ára, sem var svo lánsöm að þessu sinni, en hún er sannkallaður lestrarhestur og er búin að spæna í sig bækurnar um ráðagóðu spæjarana Lalla og Maj, svo dæmi séu tekin.
Hver er uppáhalds bókin þín?
„Uppáhaldsbækurnar mínar eru Spæjarastofa Lalla og Maju.“
Hvaða bók mundir þú mæla með við vini þína og af hverju?
„Ég myndi mæla með Spæjarastofunni því þær bækur eru svo skemmtilegar.“
Hvaða bók finnst þér að fullorðna fólkið ætti að lesa og af hverju?
„Mér finnst að þau ættu að lesa seríuna um Bold fjölskylduna, því þær eru skemmtilegar fyrir alla.“
Hvar finnst þér best að lesa?
„Mér finnst skemmtilegast að lesa uppi í rúmi.“
Hvenær finnst þér best að lesa?
„Bæði á kvöldin og á daginn.“
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á sumrin?
„Mér finnst skemmtilegast að vera úti í sólinni og leika.“
Hvað ætlar þú að gera skemmtilegt í sumar?
„Ég ætla að fara í útilegur og svo í sumarbústað.“
Við óskum Aðalbjörgu hjartanlega til hamingju með bókina sem hún hlaut í verðlaun, og vonum að þau verði henni hvatning til að halda áfram að lesa!
Nánar um sumarlesturinn hér: https://borgarbokasafn.is/sumarlestur-2026-lestrarsprettur-gunda-geitha…