BORGARBÓKASAFNIÐ

Hvenær notaðir þú bókasafnið í fyrsta sinn?
„Í september á þessu ári byrjaði ég að koma í Samveru og Spjöllum með hreim. Báðir viðburðirnir voru auglýstir á vefsíðu Háskóla Íslands. Kennararnir okkar mæltu einnig með þeim sem leið til að æfa sig í að nota tungumálið í reynd. Í tímum fáum við nefnilega mikið af efni, en kennslan fer oftast þannig fram að við sitjum kyrr, hlustum á fyrirlestur og förum yfir heimavinnu; þess vegna erum við alltaf hvött til að fara út í samfélagið og nýta það sem við höfum lært. Vandinn er sá að ekki allir hafa tíma eða vilja til að aðstoða manneskju með sterkan hreim sem á í erfiðleikum með að mynda setningar vegna skorts á orðaforða. Ég byrjaði að fara á Spjöllum með hreim í miðbænum, og síðan stakk vinur minn, sem á bíl, upp á því að við prófuðum Samveru líka, þar sem sá viðburður fer fram annan dag vikunnar þegar ekkert annað er á dagskránni.“
Hvaða áhrif hefur það haft á íslenskuna þína að mæta á þessa viðburði?
„Það hefur verið gríðarlega dýrmætt að fá að æfa sig í að tala. Það eru til ýmis úrræði á netinu, námskeið, bækur og margt fleira, en þegar kemur að því að æfa hinn helminginn af tungumálinu – að hlusta, tala og eiga samræður, sem er það sem maður notar í raun dags daglega – þá er enginn annar ókeypis valkostur í boði. Þetta hefur því verið mér ótrúlega dýrmætt.
Samnemendur mínir í háskólanum hafa spurt mig hvers vegna íslenskan mín sé svona góð, og ég svara alltaf: ‚Af því að ég kem á bókasafnið.‘“
Hvað líkar þér við Samveru?
„Ég tel að kosturinn sé sá að hópurinn er minni, sem gerir andrúmsloftið nánara. En helsti kosturinn er að fá að ganga á meðan. Þegar ég er á hreyfingu finnst mér hlutirnir flæða betur – og stemmningin er líka afslappaðri.
Maður fær líka ferskt loft og dagsbirtu, sem skiptir sérstaku máli nú þegar dagarnir fara að styttast og dimma.
Ég elska að vera úti í náttúrunni. Mér finnst ég læra betur þegar ég kemst út úr kyrrstöðu og er úti í náttúrunni. Þetta minnir mig líka á hvers vegna ég kom hingað til Íslands. Í stað þess að sitja bara inni í byggingu – sem ég gæti gert hvar sem er í heiminum – er ég úti að njóta fegurðarinnar ásamt öðru fólki sem er líka að læra tungumálið. Þetta finnst mér einfaldlega vera mjög rétt.“

Er eitthvað annað sem þú vilt segja um bókasafnið?
„Ég tel mikilvægt að eiga annan stað en bara heimili og skóla, eða heimili og vinnu – stað þar sem hægt er að koma saman og hitta fólk sem er í svipaðri stöðu. Og þá er ég bara að tala um viðburðinn. Auk þess eru bækur afar mikilvægar þegar kemur að því að læra tungumál, og ég tel það skipta máli að fólk geti nálgast þær með litlum kostnaði.
Svo eru það öll tækin og tólin. Sem útlendingur á Íslandi á ég ekki hluti eins og saumavél, útilegubúnað eða annað sem skiptir máli þegar maður er að koma sér fyrir hér. Það skiptir miklu máli að gera þetta ferli viðráðanlegra, sérstaklega þegar maður er ekki mjög vel fjárhagslega staddur og skortir tengslanet og úrræði. Og aðgangur að tölvum, hljóðverum og öllu þessu – það er frábært fyrir sköpunarkraftinn! Ekki bara fyrir útlendinga, heldur líka fyrir Íslendinga sem búa ekki yfir þessum tækjum. Bókasafnskort opnar dyr að svo miklum verðmætum.
Ég hef nýtt mér Hringrásarsafnið nokkrum sinnum, til dæmis fyrir afmælisveislu þar sem ég fékk lánaðan allan búnað fyrir veisluna. Ég hef líka fengið lánaðar bækur, sérstaklega bækur fyrir þá sem eru að byrja að læra íslensku. Ég hef notað staðinn til að læra, því þar er hægt að setjast niður í ró og næði, fjarri öllu öðru. Svo eru þar líka margir viðburðir sem ég sæki.
Bókasöfn eru eins og miðpunktur samfélagsins – og ég segi þetta ekki bara til að gera mikið úr þeim, heldur meina ég það í alvöru. Sérstaklega frá sjónarhóli innflytjanda; hér á landi virðast margir félagshópar lokast eftir framhaldsskóla, þannig að það að geta komið hingað, nýtt sér öll þessi úrræði og hitt fólk sem er í svipaðri stöðu... ég er kannski bara að blaðra, en það felst gríðarlegt gildi í öllum þeim tækifærum sem bjóðast hér á bókasafninu!
Sem er dálítið fyndið, því í Kanada notaði ég bókasafnið aldrei neitt að ráði. Ég held að ég hafi tekið því sem sjálfsögðum hlut af því að ég ólst upp þar, en hér nota ég það endalaust allan tímann.“