BORGARBÓKASAFNIÐ

Í þessari sýningu er gefin innsýn í töfrandi heim barnabókanna. Myndhöfundur leyfir okkur að fylgjast með hugmyndavinnu og skissugerð sem að lokum verður að fullsköpuðum myndum í barnabók.
Birna Daníelsdóttir er mynd- og rithöfundur bókarinnar Ég bý í Risalandi sem kom út árið 2025. Bókin hlaut Sólfaxa - Íslensku barnabókaverðlaunin og tilfnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barna- og unglingabóka.
Á sýningunni gefst gestum tækifæri til að skoða vinnuferli höfundar, ferðalagið frá hugmynd til lokaútgáfu myndanna, sem og áhöldin og efnin sem hún notaði. En við gerð myndanna notaðist Birna við blandaða tækni; gvass málningu, tréliti, vaxliti og ekki síst klippitækni sem átti stóran þátt í skissuferlinu. Birna deilir hinu skapandi ferli sem á sér stað áður en hið prentaða eintak er komið í hendurnar á börnunum.
Birna Daníelsdóttir er fædd í Svíþjóð árið 1981 og býr í Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni. Hún er með B.Sc. gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands og M.Sc í sjávarlíffræði frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Í mörg ár starfaði hún við gæðaeftirlit við lyfjaframleiðslu áður en hún venti kvæði sínu í kross og lauk diplómanámi í teikningu frá Myndlistarskóla Reykjavíkur 2022. Þar lét hún gamlan draum rætast um að vinna við skapandi greinar og starfar nú sem sjálfstætt starfandi myndhöfundur.
Boðið verður upp á smiðju í tengslum við sýninguna.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6145