BORGARBÓKASAFNIÐ
Í tengslum við sýninguna Skissur verða að bók, verður Birna Daníelsdóttir með listasmiðju þar sem hún leiðir þátttakendur í sköpun dúkkulísu í anda karakter bókarinnar Ég bý í Risalandi. Þátttakendum gefst hér tækifæri til að klippa út, lita og hanna föt fyrir dúkkulísurnar með ólíkum efnivið, og þannig gera persónu bókarinnar að veruleika á sinn eigin hátt eða skapa sína eigin sögupersónu. Hér er það sköpunargleðin sem er í hávegum höfð. Um er að ræða fjölskyldusmiðju þar sem fullorðin eru hvött til þess að mæta með börnum á öllum aldri og eiga saman skemmtilega stund. Birna Daníelsdóttir er fædd í Svíþjóð árið 1981 og býr í Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni. Hún útskrifaðist með B.Sc gráðu í Líffræði úr Háskóla Íslands 2008 og M.Sc í sjávarlíffræði frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Í mörg ár starfaði hún svo í gæðaeftirliti örvefræðideildar við lyfjaframleiðslu áður en hún venti kvæði sínu í kross og lauk diplómanámi í teikningu frá Myndlistarskóla Reykjavíkur 2022. Þar lét hún gamlan draum rætast að vinna við skapandi greinar og starfar nú sem sjálfstætt starfandi myndhöfundur. Smiðjan er í tengslum við sýningu Birnu, Skissur verða að bók. Nánari upplýsingar veitir: Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6145
Laugardagur 23. maí 2026 – 13:30-14:30
Borgarbókasafnið Grófinni
Tryggvagata 15, 101 Reykjavík