BORGARBÓKASAFNIÐ

Hin æsispennandi sumarlestursáskorun Borgarbókasafnsins, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og almenningsbókasafna, Gúndi geithafur og grasleitin mikla, heldur áfram. Nú hefur sjöundi vinningshafinn verið dreginn út og heitir sú heppna Ingunn Lilja Sigurjónsdóttir, 11 ára.
Hver er uppáhalds bókin þín?
„Wings of Fire-serían er í uppáhaldi hjá mér. Þetta eru fantasíubækur sem fjalla um dreka, en ég les þær á ensku því ég var í skóla í Ástralíu í byrjun árs og ég uppgötvaði þær á skólabókasafninu þar.“
Hvaða bók mundir þú mæla með við vini þína?
„Oftast eru það vinir mínir sem mæla með bókum fyrir mig, en ég hef líka sagt vinum mínum frá Wings of Fire-seríunni og sumir þeirra hafa lesið þær.“
Hvaða bók finnst þér að fullorðna fólkið ætti að lesa?
„Ég myndi bara mæla með textaútgáfunni af Wings of Fire. Hún er upprunalega útgáfan áður en það kom svo útgáfa í myndasögustíl sem ég les í staðinn.“
Hvar finnst þér best að lesa?
„Mér finnst best að lesa uppi í rúmi fyrir svefninn og svo líka á morgnana á þeim dögum þegar maður getur legið aðeins lengur uppi í.“
Hvenær finnst þér best að lesa?
„Á kvöldin!"
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á sumrin?
„Mér finnst skemmtilegast að leika mér og vera úti í garðinum heima, því ég er frekar heimakær. Síðan að fara í útilegur, það er mjög gaman.“
Hvað ætlar þú að gera skemmtilegt í sumar?
„Í sumar fór ég á landsmót skáta sem var haldið fyrir norðan og var síðan á ferðalagi þar. Það var mjög skemmtilegt, ég kynntist fullt af nýju fólki, líka krökkum frá öðrum löndum. Ég er meira að segja nýkomin frá Akureyri til að taka á móti vinningnum!“
Þess má geta að sumarlestraráskorunin stendur yfir til 20. ágúst þannig að enn er tími til að taka þátt!
Allar nánari upplýsingar hér: https://borgarbokasafn.is/sumarlestur-2026-lestrarsprettur-gunda-geithafurs