BORGARBÓKASAFNIÐ

Fanny Sissoko og Martyna Karolina Daniel, verkefnastjórar hjá Borgarbókasafninu, tóku á dögunum þátt í ráðstefnu um nám á vinnustöðum, þar sem þær fjölluðu um hugmyndafræði Framtíðarfestivalsins.
Ráðstefnan Work, Learn, Evolve: Hvernig lærum við í starfi á tímum hraðra breytinga? var haldin í Reykjavík þann 20. október en þar kom fagfólk frá Norðurlöndunum saman til að ræða nám á vinnustöðum, starfsþróun og símenntun.
Á ráðstefnunni var sjónum beint að mikilvægi náms á vinnustöðum sem símenntun, bæði hjá hinu opinbera og innan einkageirans. Meðal annars var fjallað um hvernig vinnustaðir geta stuðlað að aukinni þekkingu og færni starfsfólks, hvernig hægt er að efla og viðhalda hæfni í daglegum störfum og hvernig menntastofnanir geta stutt við slíka þróun með ráðgjöf, samstarfi og nýsköpun.
Fanny Sissoko og Martyna Karolina Daniel, verkefnastjórar hjá Borgarbókasafninu, tóku þátt í ráðstefnunni og stýrðu þar vinnustofu sem byggði á hugmyndafræði Framtíðarfestivals Borgarbókasafnsins. Voru þátttakendur í vinnnustofunni hvattir til að nota skynfærin til að rifja upp minningar og ræða hvaða færni og lærdóm þeir tengdu við þessar minningar.
Vinnustofan undirstrikaði mikilvægi þess að skapa rými fyrir nám utan hefðbundins skólaumhverfis, þar sem fólk lærir hvert af öðru í gegnum skynjun, upplifun og þátttöku.
Nánar um Framtíðarfestivalið: https://borgarbokasafn.is/framtidarfestival
Nánari upplýsingar veita:
Martyna Karolina Daniel - Verkefnastjóri – aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is
Fanny Sanne Sissoko - Verkefnastjóri - inngilding og fræðsla
fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is