Litla bókasafnið
Litla bókasafnið heimsækir yngstu deildir leikskólanna, stútfullt af bókum sem henta yngstu lesendunum. Með Litla bókasafninu fá foreldrar bréf frá Borgarbókasafninu, umsókn um fyrir fyrsta bókasafnsskírteininu og hvatningu til þess að hlúa að góðu lestraruppeldi. Öll börn fá frítt bókasafnsskírteini til 18 ára aldurs. Foreldrar geta fyllt út umsóknarblaðið, skilað því í afgreiðslu í næsta Borgarbókasafni og börnin geta fengið lánaðar bækur, teiknimyndir, tónlist, spil og annað endurgjaldslaust!
Hvernig virkar Litla bókasafnið?
Leikskólarnir munu fá boð þegar komið er að því að Litla bókasafnið komi til þeirra. Þegar Litla bókasafnið kemur í leikskólann geta börn og foreldrar fengið lánaðar bækur með sér heim í 1-2 daga og skilað þeim svo aftur í Litla bókasafnið. Litla bókasafnið dvelur í um þrjár vikur á hverjum stað. Foreldrar munu fá póst frá leikskólanum nokkrum dögum áður en Litla bókasafnið fer úr leikskólanum með áminningu um að skila bókunum. Ef ekki næst að skila bókunum í Litla bókasafnið í leikskólanum má skila þeim í næsta Borgarbókasafn. Litla bókasafnið mun svo koma aftur að ári og heimsækja næstu kynslóð nýrra leikskólabarna.
Hér er hægt að sjá lista hvenær Lilta bókasafnið er væntanlegt í hvern leikskóla. Listinn er birtur með fyrirvara um breytingar.
Verkefnið Litla bókasafnið hlaut styrk úr Bókasafnasjóði. Önnur bókasöfn er frjálst að nýta sér verkefnið og fá leyfi til að nota teikningarnar til að smíða sitt eigið Litla bókasafn.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146