BORGARBÓKASAFNIÐ

Hreiðrið: sögur um að tilheyra

Hreiðrið logo

Hreiðrið, sögur um að tilheyra
Borgarbókasafnið Grófinni (2. hæð)
6. ágúst - 2. nóvember 2026

‘Að tilheyra er þegar þú þarft ekki alltaf að horfa yfir öxlina á þér.’

Hreiðrið er notalegt horn á Borgarbókasafni Reykjavíkur sem geymir safn texta og miðla sem valdir eru af notendum bókasafnsins. Í Hreiðrinu eru 13 sögur þar sem fólk deilir bókum, lögum, ljóðum, kvikmyndum og leikhúsverkum sem vekja hjá þeim tilfinningu um að tilheyra.

Innsetningin var opnuð í tilefni Hinsegin Daga með 9 hinsegin sögum og síðan þá hafa fleiri sögur bæst við.

Í heimi þar sem fólk er sífellt meira sundrað gefur Hreiðrið tækifæri til að hlusta á einstaklinga með mismunandi lífsreynslu.

Innsetningin er opin á 2. hæð í Grófinni og verður opið til 2. nóvember en sögurnar verða áfram aðgengilegar á vefsíðu Borgarbókasafnsins eftir þann tíma. 

Þátttakendur: Ólafur Aðalsteinsson, Rebecca Hidalgo, Ólafur Helgi Móberg Ólafsson (Starína), Reyn Alpha Magnúsdóttir, Sebastían Oddný Arnarson, Sindri Sparkle Freyja, Dori Baldvinsson, Nas, Eliott Spencer, Daniel Roh, Anna Kristín Jensdóttir, Eric Hearn, Björn Elí Víðisson.

Innsetning: Embla Vigfúsdóttir
Hönnun: Droplaug Benedigktsdóttir
Verkefnastjóri: Fanny Sissoko - fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is