Hreiðrið: sögur um að tilheyra

‘Að tilheyra er þegar þú þarft ekki alltaf að horfa yfir öxlina á þér.’
Hreiðrið er notalegt horn á Borgarbókasafni Reykjavíkur sem geymir safn texta og miðla sem valdir eru af notendum bókasafnsins. Í tilefni Hinsegin daga munu gestir Hreiðursins geta hlustað á 9 sögur þar sem hinsegin fólk deilir bókum, lögum, ljóðum, kvikmyndum og leikhúsverkum sem vekja hjá þeim tilfinningu um að tilheyra.
Í heimi þar sem fólk er sífellt meira sundrað gefur Hreiðrið tækifæri til að hlusta á einstaklinga með mismunandi lífsreynslu.
Hlustaðu á sögur á íslensku
Hlustaðu á sögur á ensku
Innsetningin verður opin út september á 2. hæð í Grófinni. Sögurnar verða áfram aðgengilegar á vefsíðu Borgarbókasafnsins eftir þann tíma.
Þátttakendur: Ólafur Aðalsteinsson, Rebecca Hidalgo, Ólafur Helgi Móberg Ólafsson (Starína), Reyn Alpha Magnúsdóttir, Sebastían Oddný Arnarson, Sindri 'Sparkle' Freyja, Dori Baldvinsson, Nas, Eliott Spencer.
Innsetning: Embla Vigfúsdóttir
Hönnun: Droplaug Benedíktsdóttir
Verkefnastjóri: Fanny Sissoko - fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is
Hægt að lesa viðtal við Nas, einn af þátttakendum í Gay Iceland hér.
Hægt er að hlusta á viðtal við þátttakendur Sindra Freyju og Rebeccu á RÚV English hér.










