BORGARBÓKASAFNIÐ

Sumarlestursáskorun Borgarbókasafnsins, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og almenningsbókasafna, Gúndi geithafur og grasleitin mikla, stendur nú sem hæst, fyrir börn um land allt.
Fyrsti vinningshafi sumarlestursins í ár hefur verið dregin út á Borgarbókasafninu. Það er hún Júlía Rós, 7 ára, sem var svo heppin að þessu sinni og hlaut hún verðlaun frá bókasafninu, hina skemmtilegu þrauta- og límmiðabók Voffinn minn.
Júlía Rós var að vonum ánægð með verðlaunin.
En skyldi hún eiga sér uppáhalds bók?
„Já, þín eigin saga-bókaflokkinn [eftir Ævar Þór Benediktsson].“
Hvar finnst henni skemmtilegast að lesa?
„Mér finnst skemmtilegast að lesa heima.“
Við óskum Júlíu Rós innilega til hamingju með verðlaunin og vonum að þau verði henni hvatning til áframhaldandi lesturs!
Nánar um sumarlesturinn hér: https://borgarbokasafn.is/sumarlestur-2026-lestrarsprettur-gunda-geitha…