Furðufuglar á hugarflugi

Samsýning Listvinnzlunnar
Borgarbókasafnið Gerðubergi
10. október - 6. nóvember 2026
Verið öll hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar laugardaginn 10. október kl. 13:00 - 15:00.
Neistinn að sýningunni er spurningin hvernig er Ísland og hver erum við? Hvar leynast ævintýri Íslands?
„Við höfum álfa og fugla í ægifagurri náttúru, hraun, harðfisk, ull og svart skammdegi. En líka poppvíkinga og partýlunda undir öskrandi sól. Og Dimmalimm. Þarna eru geimverur bak við gardínur, glaðir vinnuþjarkar, aular á stuttbuxum og alls konar fólk. Ísland er alls konar. Það er heitt á könnunni og alltaf nóg til frammi.“
Hvað sérð þú? Sérðu furðufugla á hugarflugi?
Sýningin er í umsjá Elínar Sigríðar Maríu Ólafsdóttur og Kolbeins Jóns Magnússonar úr Listvinnzlunni, listhópi hátíðarinnar 2026. Þau hafa vandlega valið verk eftir fjölbreyttan hóp listafólks úr Listvinnzlunni og víðar að. Þetta er í fyrsta sinn sem fatlað listafólk sér alfarið um sýningarstjórn á sýningu Listar án landamæra.
Listvinnzlan er listhópur Listar án landamæra 2026
Listvinnzlan er fjölbreyttur hópur listamanneskja sem stundar faglega listsköpun. Þar vinnur listafólk að eigin verkum með ólíka miðla og efnivið, meðal annars teikningu, málverk, skúlptúr, myndasögur, kvikmyndalist og gjörninga. Listvinnzlan var stofnuð árið 2022 af Margréti M. Norðdahl og hefur á fáum árum vaxið ört og orðið mikilvægur vettvangur innan íslensks lista- og menningarlífs.
Sýnendur eru:
Atli Már Indriðason · Ármann Kummer Magnússon · Benedikta Rostan · E.S.M.Ó. Elín S. M. Ólafsdóttir · Frida Adriana Martins · Garðar Reynisson · Gígja Garðarsdóttir · Guðmundur Stefán Guðmundsson · Gunnar Már Pálsson · Harpa Rut · Helga Matthildur Viðarsdóttir · Ísak Óli Sævarsson · Katrín Guðrún Tryggvadóttir · Kolbeinn Jón Magnússon · Lára Lilja Gunnarsdóttir · Lilja Dögg Birgisdóttir · Þórir Gunnarsson - Listapúkinn · Óskar Theódórsson · Sigrún Huld Hrafnsdóttir · Þorvaldur Arnar Guðmundsson
Aðgengi á Borgarbókasafninu Gerðubergi er grænt – engir þröskuldar, tvöfaldar rennihurðir við inngang, lyfta á milli hæða, aðgengilegt salerni á neðri hæð og merkt bílastæði fyrir framan húsið.sýninguna
List án landamæra leggur áherslu á list fatlaðs listafólks. Hátíðin var fyrst haldin árið 2003 á Evrópuári fatlaðra og hefur verið haldin árlega síðan.
Nánari upplýsingar veita:
Ása Fanney Gestsdóttir, listrænn stjórnandi
info@listin.is
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Gerðubergi
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170