BORGARBÓKASAFNIÐ

Helena Dís Daðadóttir, 8 ára, er fimmti vinningshafinn sem dreginn er út í sumarlestursáskoruninni Gúndi geithafur og grasleitin mikla, samstarfi Borgarbókasafnsins, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og almenningsbókasafna.
Helena Dís er mikill lestrarhestur sem finnst bækurnar um Sölku Sól skemmtilegastar og mælir eindregið með að vinir hennar lesi þær.
En hvar skyldi henni finnast best að lesa og hvenær tíma dags?
„Í sófanum í stofunni áður en ég fer að sofa.“
Auk þess að lesa finnst Helenu Dís gaman að leika sér úti á sumrin. En hvað fleira skyldi hún ætla að gera í sumar?
„Fara í útilegu.“
Það verður líklega enginn sófi í útilegunni til að liggja í og lesa en þá er tilvalið að skríða inn í tjald og lesa við vasaljós eða finna sér mjúka graslaut til að leggjast í með góða bók.
Starfsfólk Borgarbókasafnsins óskar Helenu Dís innilega til hamingju og vonar að hún lesi margar skemmtilega bækur í sumar.
Sumarlestraráskorunin stendur yfir til 20. ágúst og því enn er nægur tími til að taka þátt!
Allar nánari upplýsingar hér:
https://borgarbokasafn.is/sumarlestur-2026-lestrarsprettur-gunda-geithafurs