BORGARBÓKASAFNIÐ
6. nóvember í Borgarbókasafninu Gerðubergi 7. nóvember í Borgarbókasafninu Spönginni Á Dægurflugum í hádeginu í nóvember verða flutt lög eftir Björgvin Halldórsson sem féll frá í apríl á þessu ári og skildi eftir sig fjöldann allan af dásamlegum dægurperlum sem við öll þekkjum. Sigvaldi Helgi Gunnarsson er uppalinn í Skagafirði og tók sín fyrstu skref í tónlist þar. Hann hefur frá unga aldri komið fram á sviði, einsamall eða með hljómsveit, og flutt tónlist fyrir sveitunga sína, svo sem á þorrablótum, afmælum, brúðkaupum, útförum, og svo mætti lengi telja. Þá komst Sigvaldi Helgi í úrslit The Voice árið 2015 Árið 2024 gaf hann út smáplötuna Up North sem inniheldur frumsamin lög og texta. Slagorðið hans er ,,Tónlist við flest tilefni” Á tónleikunum spilar Sigvaldi á gítar og syngur og með honum verður Leifur Gunnarsson á kontrabassa en hann er jafnframt listrænn stjórnandi tónleikanna. Dægurflugur í hádeginu er tónleikaröð sem Borgarbókasafnið stendur fyrir í samstarfi við Leif Gunnarsson kontrabassaleikara. Þar kemur fram margt af okkar helsta tónlistarfólki og á tónleikunum gefst Reykvíkingum tækifæri til að koma saman, hitta félaga, njóta tónlistar og spjalla við tónlistarfólkið eftir tónleika. Markmiðið er fyrst og fremst að færa metnaðarfulla tónlist út í hverfi borgarinnar þannig að fólk geti notið hennar í eigin nærumhverfi og á eigin forsendum. Nánar um Sigvalda: instagram.com/sigvaldihelgi/ Nánar um Leif hér: www.lgtonar.com Frítt er inn á tónleikana og eru öll hjartanlega velkomin. Nánari upplýsingar veita: Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is Leifur Gunnarsson leifurgunnarsson@gmail.com
Föstudagur 6. nóv. 2026 – 12:15-13:00
Borgarbókasafnið Gerðubergi
Gerðuberg 5, 111 Reykjavík