BORGARBÓKASAFNIÐ

Dægurflugur í hádeginu er tónleikaröð sem Borgarbókasafnið stendur fyrir og eru um sex tónleikar haldnir yfir árið í Gerðubergi og Spönginni.
Í upphafi hét tónleikaröðin Jazz í hádeginu en hún hóf göngu sína árið 2014. Margt af okkar ástsælasta tónlistarfólki á Íslandi hefur komið fram ásamt Leifi Gunnarssyni kontrabassaleikara í gegnum tíðina en hann hefur verið listrænn stjórnandi frá upphafi.
Markmiðið hefur ætíð verið að færa tónlistina út í hverfi borgarinnar þannig að fólk geti notið hennar í eigin nærumhverfi og án þess að þurfa að greiða aðgangseyri. Dægurflugurnar hafa svo sannarlega fallið í góðan jarðveg hjá tónleikagestum okkar og jafnt fullorðnir sem og börn hafa fengið að njóta fjölbreyttrar tónlistar í flutningi okkar góða tónlistarfólks.
Leifur Gunnarsson hefur skapað sér tryggan sess í íslensku tónlistarlífi á síðustu árum. Hann útskrifaðist frá FÍH 2009 og nam tónsmíðar og kontrabassaleik við Rytmisk Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn og lauk B.mus gráðu þaðan vorið 2013. Jazzsenan hefur átt hug hans allan og hefur hann m.a. setið í stjórn Jazzhátíðar Reykjavíkur og kynnt jazztónlist fyrir börnum og ungmennum með viðburðaröðum á borð við Jazzhrekkinn. Leifur hefur verið listrænn stjórnandi jazztónleika, jafnt fyrir börn sem fullorðna, hjá Borgarbókasafninu frá 2014.
Öll hjartanlega velkomin og ókeypis er inn á alla tónleikana.