![Anime klúbbur Borgarbókasafninu Grófinni Anime klúbbur Borgarbókasafninu Grófinni](https://borgarbokasafn.is/sites/default/files/styles/ding_secondary_large/public/title_image/event/_bd6a86f7-c8f3-41be-8d15-35160c34f71f.jpg?itok=O3vl_tDa)
Information about the event
Klúbbur | Anime fyrir 13-16 ára
Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 13-16 ára sem hafa brennandi áhuga á Anime.
Við hittumst á fimmtu hæðinni í Grófinni í myndasögudeildinni. Í klúbbnum gerum við margt skemmtilegt eins og að gera merki, spila borðspil, cosplay, spjalla um anime svo eitthvað sé nefnt. Svo verða að sjálfsögðu skipulagðar bíósýningar, teiknismiðjur, kynningar á Anime bókum og bara hvað sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera!
Leiðbeinendur klúbbsins eru frá Borgarbókasafninu og við leggja okkur sérstaklega fram að taka vel á móti öllum og okkar mottó er að það sé hvergi pláss fyrir fordóma.
Það er auðvitað ekkert þátttökugjald, en skráning er nauðsynleg. Hægt er að skrá sig hér (ath. neðst á síðunni) eða senda nafn, netfang og símanúmer til holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir Verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is