Information about the event
Litlu jólin í Miðdal | Jólalag Borgarbókasafnsins 2024 | Úrslit
Litlu jólin í Miðdal eru hátíðleg athöfn í Úlfarsárdal þar sem gestum og gangandi býðst að þiggja ilmandi heitt kakó og piparkökur, föndra jólakort handa ástvinum og hlýða á fallega jólatónlist.
Athöfnin hefst á tónlistaratriði og að því loknu mun dómnefnd kynna sigurvegara í keppninni um Jólalag Borgarbókasafnsins 2024. Í kjölfarið verður lagið frumflutt fyrir gesti og gangandi. Á sama tíma verður boðið upp á jólakortagerð í Smiðjunni.
Í dómnefnd sitja þrír vel valdir góðkunningjar bókasafnsins. Fyrst ber að nefna Andrés Þór Þorvarðarson sem vinnur sem húsvörður á Borgarbókasafninu í Grófinni. Hann lauk BA gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands árið 2019 og hefur verið í hljómsveitum á borð við Milkhouse og spilað með tónlistarkonunni K.óla. Hann veit fátt betra en frábært lag.
Svo er það Sigríður Stephensen, sérfræðingur á Borgarbókasafninu í Spönginni en hún er áhugamanneskja um allskonar tónlist. Hún lærði á píanó í æsku, söng lengi í Hamrahlíðarkórnum og Mótettukórnum og um árabil sá hún um útvarpsþætti á Rás 1, þar sem hljómaði heimstónlist, samtímatónlist, klassísk tónlist og menningarumfjöllun af ýmsu tagi.
Síðast en ekki síst er það Hildur Kristín Stefánsdóttir, formaður dómnefndar. Hildur er tónlistarkona úr Reykjavík fædd 1988. Hún hefur getið sér gott orð sem lagahöfundur og pródúsent fyrir sína eigin tónlist og fyrir aðra listamenn. Tónlistarferillinn hófst í indíhljómsveitinni Rökkurró 2006 sem söngkona, sellóleikari og lagahöfundur, en með hljómsveitinni gaf hún út þrjár breiðskífur og fór á fjölmörg tónleikaferðalög. Árið 2015 sneri hún sér yfir í poppið þegar hún samdi og flutti lagið Fjaðrir í Söngvakeppni Sjónvarpsins. 2016 hóf hún svo formlega sólóverkefnið undir eigin nafni og gaf út lagið I'll Walk With You sem hlaut mikla útvarpsspilun og Íslensku tónlistarverðlaunin sem popplag ársins 2017, ásamt því að hún var tilnefnd sem nýliði ársins. Sama ár átti hún einnig lagið Bammbaramm í úrslitum Söngvakeppninnar. Hún hefur gefið út tvær EP plötur og gefur út sína fyrstu breiðskífu, Afturábak, í lok árs. Hildur hefur unnið mikið sem lagahöfundur og pródúsent erlendis og hérlendis, kennt lagasmíðar og situr í stjórn STEF og FTT.
Við hvetjum öll til að mæta, hlýða á og komast í sannkallað hátíðarskap. Það væri gaman að sjá sem flest í skemmtilegum jólapeysum.
Boðið verður upp á piparkökur og kakó.
Dagskrá:
Kl. 15:00-17:00: Jólakortagerð í Smiðjunni - opin smiðja
Kl. 16:00: Tónlistaratriði
Kl. 16:10: Úrslit í Jólalagakeppni Borgarbókasafnsins 2024 tilkynnt
Nánar má lesa um Jólalag Borgarbókasafnsins 2024 hér.
Nánari upplýsingar á netfanginu jolalag@borgarbokasafn.is